19.02.2013 Verzlingar gera það gott Helgina 8.-9. febrúar fór fram svokölluð UT-messa í Hörpunni. Á messunni eru kynningar á nýjustu tækni ýmissa fyrirtækja auk fjölmargra fyrirlestra. Í ár var einnig haldin „hakkarakeppni“ (hackathon) sem þeir félagar Kristján Ingi og Ragnar Þór í 6-X gerðu sér lítið fyrir og sigruðu. Hér má nálgast umfjöllun um keppnina. Þeir Krisján og Ragnar eru engir nýgræðingar í forritun en þeir voru í liði Verzlunarskólans sem sigraði forritunarkeppni framhaldsskóla fyrir tæpu ári síðan og stefna eflaust á að verja titilinn í keppninni í ár sem fer fram helgina 15. – 16. mars. Verzlunarskólinn óskar þeim Kristjáni og Ragnari til hamingju með sigurinn. Allir þátttakendurnir Myndir: http://greenqloud.com/