20.03.2024 Verzlingar í úrslit í eðlisfræðikeppni Lið Verzlunarskólans í eðlisfræði náði góðum árangri í nýafstaðinni landskeppni í eðlisfræði. Undankeppni var haldin um land allt og náðu sex nemendur skólans sæti í úrslitakeppninni sem fór fram í Háskóla Íslands um síðustu helgi. Í úrslitakeppninni náðu okkar nemendur efstu sætunum: 1. sæti Ragna María Sverrisdóttir, 3X 2. sæti Bjartþór Steinn Alexandersson, 3X 4. sæti Fannar Grétarsson, 2Y 7. sæti Símon Patrick Kattoll, 3Y 11. sæti: Mikael Bjarki Ómarsson, 3X Þau Ragna, Bjartþór og Fannar eru þar með komin í landslið Íslands í eðlisfræði sem tekur þátt á Ólympíuleikunum í eðlisfræði sem fara fram í Isfahan í Íran í sumar, og/eða Evrópumótinu í eðlisfræði sem fer fram í Kutaisi í Georgíu. Á myndinni má sjá Rögnu Sverrisdóttur taka við viðurkenningu fyrir 1. sætið í úrslitakeppninni. (ljósmynd: Viðar Ágústsson).