Verzlunarskóli Íslands hlýtur Jafnvægisvogina í annað sinn

Verzlunarskóli Íslands hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í annað sinn.

Viðurkenningin er veitt þeim þátttakendum sem hafa náð að jafna kynjahlutfall í framkvæmdastjórnum. Viðurkenningin var afhent við hátíðlega athöfn á árlegri viðurkenningarhátíð Jafnvægisvogarinnar, þar sem 93 fyrirtæki, 15 sveitarfélög og 22 opinberir aðilar fengu viðurkenningu fyrir að ná fram jafnrétti í efsta stjórnendalagi. Markmið Jafnvægisvogarinnar er að tryggja 40/60 kynjahlutfall á þessum sviðum.

Aðrar fréttir