23.04.2012 Verzlunarskólinn Íslandsmeistari framhaldsskóla í skák Verzlunarskólinn varð fyrir helgi Íslandsmeistari framhaldsskóla í skák. Lið Verzlunarskólans skipuðu þeir Hjörvar steinn Grétarsson (5-H), Patrekur Maron Magnússon (5-I), Jökull Jóhannsson (6-E) og Alexander Gautason (4-X). Þetta er frábær árangur hjá sveitinni, en alls tóku 40 ungmenni þátt og er það metþátttaka á öldinni. Keppnin í ár var gríðarlega jöfn en eftir æsispennandi baráttu við sveit MR stóð skáksveit okkar uppi sem siguvegari. Við óskum sveitinni innilega til hamingju með árangurinn. Skemmtilega úttekt á mótinu má lesa hér og hér. Mynd: skak.blog.is