Umsókn um skólavist á 1. ári (vorönn), 2. ári og 3. ári

Gott er að hafa eftirfarandi í huga:

  1. Einn áfangi í stærðfræði á 2 þrepi.
  2. Einn áfangi í íslensku á 2 þrepi.
  3. Einn áfangi í ensku á 2 þrepi.
  4. Einn áfangi í dönsku á 2 þrepi.
  5. Einn áfangi í tölvunotkun ef sótt er um á viðskiptabraut.

  1. Tveir áfangar í stærðfræði á 2 þrepi.
  2. Tveir áfangar í íslensku á 2 þrepi.
  3. Tveir áfangar í ensku á 2 þrepi.
  4. Einn áfangi í þriðja tungumáli á 1 þrepi.
  5. Einn áfangi í bókfærslu ef sótt er um á viðskiptabraut.

 

Nemendur sem sækja um að vori að loknu 1. námsári hafa möguleika á að ljúka einstaka áföngum í fjarnámi í Verzlunarskólanum á sumarönn áður en nám hefst. Samþykki fyrir inngöngu getur verið háð því að nemandi ljúki ákveðnum áföngum í fjarnámi áður en nám hefst á haustönn á 2. ári.

Umsækjendur eru hvattir til að skoða vel uppbyggingu námsbrauta í skólanum og bera saman við sitt fyrra nám.

Verzlunarskólinn er bekkjarskóli og þegar nýnemar eru innritaðir að loknu námi í 10. bekk þá eru öll pláss fyllt sem skólinn getur boðið upp á. Til að hægt sé að innrita nýja nemendur á seinni stigum þarf pláss að losna í bekk á viðkomandi braut sem sótt er um.

Athugið vel þær dagsetningar sem gefnar eru upp varðandi umsóknarfrest annars vegar vegna umsókna um áramót og hins vegar vegna umsókna á vorönn.

Verzlunarskólinn er bekkjarskóli og því er forsenda þess að umsækjandi fái skólavist um áramót eða inn í efri bekki að hausti að hann hafi lokið sem flestum áföngum á þeirri braut sem sótt er um.

Umsóknarfrestur um áramót er 1. desember og umsóknir eru afgreiddar og þeim svarað 20. desember.

Umsóknarfrestur að vori er 1. júní og umsóknir eru afgreiddar og þeim svarað fyrir 20. júní.

Athugið að innritun nýnema úr 10. bekk fer fram að vori í gegnum menntagatt.is.