Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Lokafundur Foreldraráðs Verzlunarskólans Skólaárið 2020-2021 Mánudaginn 19. mars kl. 17:00 Viðstaddir: Tinna, Dagný, Agnes, Soffía, Kristín, Rannveig, María Kristín, Jóhanna, Stefán og Þorkell yfirkennari.
Staða reiknings er 2.692.502 kr.
Taflborð ekki enn komin frá Ping Pong, en þau er líklega hægt að versla hér heima á ABC skólavörum eða Krumma. Samþykkt var að kaupa 3 borð, eitt á hverja hæð. Rannveig pantar borðin. Áætlaður kostnaður ca. 150.000 kr.
Beiðni kom frá 3. ári vegna Galakvölds sem halda á 17. júlí nk. Samþykkt einróma var að veita þeim 500.000 kr. styrk upp í atriði/viðburð á því kvöldi, í ljósi þess að þau eru að útskrifast og hafa ekki fengið neina viðburði né styrki sl. 3 annir vegna Heimsfaraldursins COVID-19. Diljá Valdimarsdóttir formaður þriðja bekkjarráðs heldur utan um það.
Peysufatadagur fellur alveg niður hjá 3. ári, 2. ár frestar viðburðinum fram á haust.
Versló vælið er áætlað í maí, og stefnt er að því að senda það út í streymi vegna samkomutakmarkana. Stór og flottur viðburður. Beiðni kom um styrk vegna útsendingar en áætlaður kostnaður er um 1.000.000 kr. og samþykkt einróma var að styrkja það um 500.000 kr. Jói Lapas formaður skemmtó heldur utan um það.
Stefnt er að því að halda einhvers skonar vorhátíð loka kennsludaga annarinnar, og hafa t.d. matarvagna, DJ eða annað á bílaplani skólans. Þetta verður unnið af skólanum í samstarfi við Foreldraráðið og styrkir Foreldraráðið þennan viðburð um 1.200.000 kr. Samþykkt einróma.
Samþykkt var einróma að kaupa merkispjöld/þynnur sem áletrað verður á: “Gjöf til nemenda Verzlunarskólans skólaárið 2019-2020, frá Foreldrafélaginu” og setja á borðtennisborðið “Gjöf til nemenda Verzlunarskólans skólaárið 2020-2021, frá Foreldrafélaginu” og setja á Fótboltaspilið og Taflborðin
+2.692.502 kr. Staða á reikningi 19. apríl 2021 – 500.000 kr. Væl – 500.000 kr. Gala – 1.200.000 kr. Vorhátíð -ca.150.000 kr. 3xTaflborð ________________ Áætlað ca.342.502 kr. gangi inn í nýtt skólaár 2021-2022
Þeir sem að ganga úr stjórn núna á vordögum eru: Rannveig Klara Matthíasdóttir – formaður Jóhanna Áskels Jónsdóttir – gjaldkeri Stefán Guðjónsson Agnes Hildur Hlöðversdóttir Helga Ólafsdóttir Kristín Skúladóttir Sigríður Stefanía Óskarsdóttir
Formaður – Rakel/Dagný/Steinunn/María/Soffía/Tinna Gjaldkeri – Rakel/Dagný/Steinunn/María/Soffía/Tinna Ritari: Hrefna Hallgrímsdóttir Rannveig hvetur þá sem eftir sitja að úthluta sem fyrst formanns- og gjaldkerastólnum svo að skiptin geti farið fljótt fram. Rannveig býður að sjálfsögðu fram aðstoð sína áfram ef á þarf að halda, en ekki sem formaður né gjaldkeri. Formaður þakkar einstaklega öflugri stjórn fyrir skemmtileg kynni sl. tvö ár.
Fundi slitið kl. 18:00 Gleðilegt sumar!