Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Fundurinn var sendur út rafrænt á youtube sökum Covid samkomubanns. Reynt var að flétta saman bæði aðalfund Foreldrafélagsins og skemmtikvöldi. Þar sem 7. október bar upp á forvarnardaginn voru foreldrar hvattir til að horfa saman á dagskrána með unglingunum sínum.
Mætt voru í sal: Agnes Hildur Hlöðversdóttir Tinna Ösp Arnardóttir Rakel Svansdóttir Rannveig Klara Matthíasdóttir- formaður Jóhanna Áskels Jónsdóttir Sigríður Stefanía Óskarsdóttir Hrefna Hallgrímsdóttir – fundarritari Gunnlaugur E. Björgvinsson nemi á 3.ári – útsendingarstjóri
Fer yfir dagskrá kvöldsins.
Skýrsla stjórnar frá formanni kynnt
Gefa kost á sér:
Gefa kost á sér áfram:
Annað hvort með því að koma í stjórn Foreldraráðsins eða með því að taka þátt í foreldragæslu fyrir skólaböll. Þetta er að sjálfsögðu frábær leið til að kynnast öðrum foreldrum og um leið að vera virkur þátttakandi í lífinu í Versló.
Jóhanna Áskels Jónsdóttir – gjaldkeri Sjá nánar ársreikning ásamt efnahagsreikningi
Anna Steinsen
Ari Eldjárn
Útsendingu slitið um kl 21. Rétt tæplega 500 tölvur/skjáir stöldruðu við meðan á útsendingu stóð. Sem gefur vísbendingar um að enn fleiri hafi horft og svo virðist sem þetta hafi mælst vel fyrir.
Ræddar voru áhyggjur af stöðu nemenda í Covid faraldri, þá sérstaklega staða nýnema. Foreldrafélagið hefur áhyggjur af að Versló sé eftirbátur í því að bjóða nýnemum upp á betra staðnám. Lagt var til að heyra í forráðamönnum skólans og ræða þetta sérstaklega. Fram til 19. október er skólinn lokaður og einungis boðið upp á fjarnám. Vonandi í framhaldinu verði hægt að skoða þessi mál betur og gera breytingar.
Ábending barst til formanns um að Foreldrafélagið athugaði hvers vegna mötuneyti nemenda byði ekki upp á fjölnota diska, glös og hnífapör. Farið verður í málið og niðurstöður birtar.
Önnur ábending barst um að formaður beitti sér fyrir því að niðurstöður könnunar námsráðgjafa verði sendar beint til foreldra en séu ekki eingöngu inni á heimasíðu skólans. Þessi könnun snertir börnin okkar beint og sjálfsagt að við foreldrar fáum hana senda.
Aðalfundi var slitið um kl 21.40. Hrefna Hallgrímsdóttir ritari