Gildin okkar
Skólinn hefur í samvinnu við starfsfólk sett sér gildi sem lögð eru til grundvallar öllu starfi skólans.

-
Hæfni
Við viljum kunna okkar fag og sýna alúð og metnað í starfi. Búa yfir færni til miðlunar og samskipta og hafa frumkvæði að því að tileinka okkur nýjungar.
-
Ábyrgð
Sinna starfi okkar og námi af heilindum og trúmennsku. Gætum að orðspori skólans og þeirra sem þar starfa með því að vera góðir málsvarar og fyrirmynd.
-
Virðing
Sýnum hvert öðru skilning og virðum ólík viðhorf og skoðanir. Verum umburðarlynd og ástundum stundvísi og áreiðanleika.
-
Vellíðan
Við viljum leggja grunn að jákvæðu andrúmslofti og gagnkvæmu trausti þar sem vel er búið að starfsfólki og nemendum.
Markmið Verzlunarskóla Íslands
- Brautskráðir nemendur verði færir um að takast á við nám á háskólastigi, hérlendis sem og erlendis.
- Búa nemendur undir þátttöku í atvinnulífi og lýðræðisþjóðfélagi.
- Stuðla að alhliða þroska nemenda, efla víðsýni þeirra og skapandi hugsun.
- Þjálfa nemendur í sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum.
- Efla félagslega hæfni nemenda í samskiptum og samvinnu við aðra.
Verzlunarskóli Íslands er leiðandi í viðskiptamenntun á framhaldsskólastigi á Íslandi. Skólinn leitast við að laga sig að síbreytilegum aðstæðum og vera í fremstu röð í notkun upplýsinga- og tölvutækni. Áhersla er lögð á að skapa þroskandi námsumhverfi sem eflir náms- og persónulega hæfni nemenda.