Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Fundur í skólaráði, haldinn á skrifstofu skólastjóra klukkan 12:20.
Gísli Örn Bragason, Katrín Jónsdóttir, Gunnar Mogensen Árnason, Helga Vigdís Thordersen, Lóa María Jónsdóttir, Guðrún Inga Sívertsen og Þorkell H. Diego, sem ritar fundargerð.
GunnInga útskýrir framkvæmd skólaþings fyrir nefndarmönnum og kallar eftir umræðuefnum. Gunnar leggur til að stofubreytingar og nýju útgáfuna af próftöflunni. Einnig voru nefndarviðtöl rædd og hvernig mætti bæta þau og auka aðgengi fleiri í nefndirnar. Kallað er eftir því að skólaráðsmeðlimir ræði við sitt fólk og sjái hvað brenni á fólki hér innan húss og gæti átt erindi á skólaþing.
Fyrirkomulag gleði- og forvarnadagsins var rætt. Nefndarmenn eru sammála um að fyrirkomulagið hafi verið gott og vilja gjarnan halda því áfram. Óskað var eftir málefnum sem gætu vakið áhuga auk aðstoðar við framkvæmdina.
Efni sem stungið var upp á: Kilroy, lýðháskólar, Stígmót, Unicef.
Miðannarmat var rætt og lýstu nemendur ánægju sinni með að fá meiri skriflega umsögn en þeir hafa áður fengið.
Vetrarfríið var rætt og nemendur lýstu yfir ánægju sinni með það og sérstaklega að hafa ekki misst úr skóla vegna valgreinaferða.