Mat á skólastarfi
Sjálfsmatsskýrslur eru unnar af gæðateymi skólans. Gæðateymi Verzlunarskólans samanstendur af sjö starfsmönnum skólans. Skulu allar stoðir skólastarfsins hafa sinn fulltrúa þar og ber verkefnastjóri gæðamála höfuðábyrgð á starfi teymisins.
Skólaárið 2024-2025 sitja eftirtaldir í gæðateymi:
- Anna Hera Björnsdóttir, kennari.
- Anna Sigríður Aðalbjörnsdóttir, gjaldkeri/skjalastjórn.
- Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri.
- Halldóra Ósk Hallgrímsdóttir, verkefnastjóri gæðamála.
- Sigurlaug Kristmannsdóttir, fjarnámsstjóri.
- Vala Guðný Guðnadóttir, kennari.
- Þorkell Diego, aðstoðarskólastjóri.
Meginverkefni gæðateymis eru að:
- Hafa eftirlit með að markmiðum og verkáætlun skólans sé framfylgt.
- Sjá til þess að innri úttektir séu framkvæmdar og niðurstöður þeirra kynntar og birtar.
- Rýna í rannsóknir og koma með tillögur að umbótum og sjá til þess að þeim sé fylgt eftir.
- Hafa verkáætlun tilbúna til a.m.k. 3ja ára.
- Setja saman sjálfsmatsskýrslu eftir hvert skólaár.