Prófaundirbúningur

Gátlisti fyrir próf
- Skipuleggðu lesturinn fram að prófdegi og fylgdu próftöflu.
- Finndu góða staði til að læra á. Kynntu þér t.d. vel opnunartíma bókasafnsins.
- Skipuleggðu lesturinn út frá námsáætlun og gátlistum kennara. Hér er vikuáætlun sem sniðugt er að prenta út og fylla inn í sjálf/ur. Nýttu tímann vel, prófaðu að nota promofocus.
- Finndu til og flokkaðu námsbækur, verkefni, skyndipróf og önnur gögn úr hverri námsgrein.
- Ekki hika við að leita þér aðstoðar hjá kennara, vinum og vandamönnum.
- Prófaðu sjálfa/n þig. Farðu vel yfir öll skyndipróf. Búðu til þín eigin próf.
- Láttu hlýða þér yfir. Prófaðu að nota Quizlet.
- Nýttu síðustu klukkutímana til upprifjunar.
- Hafðu reglu á svefn- og matarvenjum.
- Góður nætursvefn fyrir próf.
- Slökun (Núvitundarsetrið – á Spotify) á milli lestrarlota getur gert gæfumuninn.

Gátlisti í prófi
- Mættu tímanlega í prófið. Hafðu með þér smá hressingu í gegnsæjum umbúðum skv. prófreglum skólans.
- Skráðu minnisatriði á rissblað, svo sem formúlur, lykilhugtök og annað sem er þér ofarlega í huga þegar þú sest í prófstofu.
- Hlustaðu vel á öll munnleg fyrirmæli og lestu vel skrifleg fyrirmæli.
- Lestu allt prófið yfir áður en þú byrjar.
- Vertu með úr eða klukku fyrir framan þig í prófinu. Vertu viss um að þú vitir vægi hverrar spurningar svo að þú getir skipulagt tímann út frá því. Eyddu ekki meiri tíma í spurningu en vægi hennar er.
- Spurðu kennarann ef þú ert ekki viss. Eyddu ekki tíma í að reyna að átta þig á óljósum fyrirmælum. Óskaðu strax eftir hjálp.
- Svaraðu léttustu spurningunum fyrst. Breyttu ekki svari eftir á nema þú sért viss í þinni sök.
- Ef þú ert í vafa reyndu þá við næstu spurningu. Komdu síðar að þeirri erfiðari.
- Vertu stuttorð/ur og gagnorð/ur.

Tímastjórnun í prófi
- Mættu með úr eða klukku í prófið!
- Hvert próf er 100% – ekki rugla því saman við gildi prófs í lokaeinkunn.
- Notaðu 10 mínútur í byrjun og 10 mínútur í lokin til að komast í gang, lesa yfir o.fl.
Dæmi: Ef próftími er 1 klukkustund = 60 mínútur.
Þumalputtareglan í 1 tíma prófi er þá:
3 mínútur fyrir 5 % spurningu.
6 mínútur fyrir 10 % spurningu.
9 mínútur fyrir 15 % spurningu o.s.frv.