Sérúrræði á prófum

Verzlunarskóli Íslands leggur sig fram um að koma til móts við nemendur sem þurfa á sérúrræðum að halda. 

Skil á vottorði
  • Nemendur þurfa að skila vottorði um greiningu til námsráðgjafa skólans við upphaf fyrstu annar.
  • Vottorðinu skal skilað á rafrænu formi.
  • Námsráðgjafi kallar í framhaldi nemandann í faglegt viðtal til að fara yfir hvaða úrræði henta hverju sinni.
Umsóknarfrestir um sérúrræði
  • Umsóknir um sérúrræði þurfa að berast í gegnum Innu.
  • Námsráðgjafar fara yfir beiðnir og samþykkja eftir atvikum.
  • Frestir til að sækja um:
    • Fyrir haustannarpróf: í síðasta lagi 25. nóvember
    • Fyrir vorannarpróf: í síðasta lagi 25. apríl
Möguleg sérúrræði

Nemendur stendur til boða eftirfarandi sérúrræði í prófum:

  • Að taka próf í rólegu umhverfi
  • Að taka próf á tölvu
  • Að fá próf lesin upp
  • Að taka munnleg próf
  • Próf á lituðum pappír
  • Próf með stækkuðu letri
Lengdur próftími

Verzlunarskólinn kemur til móts við nemendur með sértæka lestrarörðugleika og nemendur sem glíma við prófkvíða með lengdum próftíma. Ekki þarf að sækja sérstaklega um þetta úrræði þar sem allir fá viðbótartíma:

Hefðbundinn próftími Lengdur próftími
60 mínútur allir fá 90 mínútur til að ljúka prófinu
90 mínútur allir fá 120 mínútur til að ljúka prófinu
40 mínútur (skyndipróf tekin í kennslustund) allir fá 50 mínútur til að ljúka prófinu
Lengdur próftími í þriðjudagsprófum
  • Þriðjudagspróf eru samræmd próf í áfanga.
  • Nemendur sem hafa skilað inn greiningu eða vottorði geta sótt um lengdan próftíma í þriðjudagsprófum, ef prófið gildir 20% eða meira af lokaeinkunn.
  • Umsókn þarf að berast námsráðgjafa með tölvupósti fyrir kl. 12 á föstudegi fyrir próf.
  • Sé umsókn samþykkt:
    • Nemandi mætir 10 mínútum fyrr.
    • Nemandi fær 60 mínútur til að leysa 40 mínútna próf.
Hugtakalistar fyrir nemendur með annað heimamál
  • Nemendur með annað heimamál en íslensku og nemendur nýkomnir frá útlöndum, geta tekið með sér hugtakalista í próf.
  • Listinn þarf að vera vottaður af kennara viðkomandi áfanga.
  • Hugtakalisti þarf að berast kennara a.m.k. sólarhring fyrir próf.