Skólahjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingur skólans er Íris Helgudóttir. Hún er starfsmaður Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hlutverk
Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál, t.d. varðandi:
- Andlega vanlíðan.
- Kynheilbrigði.
- Ráðleggingar getnaðarvarna.
- Meiðsli og sjúkdóma.
- Áfengis- og eiturlyfjaneyslu.
- Nikótínnotkun.
- Sjálfsmynd og líkamsímynd.
- Svefn.
- Mataræði.
- Hreyfingu.
- Leiðsögn um heilbrigðiskerfið.
Viðvera og staðsetning
Hjúkrunarfræðingur er staðsettur í herberginu Tómas Tómasson á 3. hæð, við hlið skrifstofunnar.
Viðtalstímar eru á:
þriðjudögum kl. 12.30 – 15.30
fimmtudögum kl. 8.30 – 11.30
föstudögum kl. 8.30 – 13.00
Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu.
Nemendur geta komið við eða bókað tíma í gegnum tölvupóst verslo@heilsugaeslan.is